Hérna mun koma skráning á póstlista
Opnunartími:
Virka daga 8:00-16:00
Við bjóðum upp á margskonar tegundir af líkamsmeðferðum og nuddi, allt eftir þörfum þínum. Hafir þú sérstakar óskir eða þarfir geturðu haft samband og athugað hvað við getum gert fyrir þig.
Við mælum með 10 skipta kúr, þá fær viðkiptavinurinn 10% afslátt.
Einnig viljum við benda á að stéttarfélög greiða oftast einhvern hluta af meðferðunum.
Meðferð þessi mýkir vöðva og örvar hreyfingu blóð- og sogæðavökva. Hún eykur jafnframt slökun og vellíðan. Klassískt nudd hefur einnig áhrif á losun úrgangsefna og greiðir fyrir aðgang að næringarefnum, sem líkaminn notar sér til viðhalds og vaxtar. Það vinnur bug á þreytu og þreytutengdum verkjum, sem stafa gjarnan af einhæfri líkamsbeitingu. Klassískt vöðvanudd, sem er þekktasta tegund nudds, er jafnframt afar áhrifaríkt við vöðvabólgu og hjálpar til við að takmarka áhrif vefjagigtar og skyldra kvilla.
Verð fyrsti tíminn 6.900Partanudd er áhrifaríkt gegn staðbundnum óþægindum, svo sem hvað snertir höfuð, herðar, axlir og hendur.
Verð fyrsti tíminn 4.500, viðhaldstímar kr. 3.900Slökunarnudd er djúpt og mýkjandi nudd, sem hefur víðtæk áhrif á vöðva líkamans og almenna líðan þína.
Verð 6.900 krMjög áhrifaríkt nudd fyrir fólk sem safnar á sig vökva og bjúg. Einnig mjög slakandi og mjúkt nudd.
Verð 6.900 krFótanudd er mjög öflug meðferð gegn til dæmis beinhimnubólgu og þreyttum fótum. Það hefur jafnframt áhrif á líðan líkamans í heild sinni.
Verð 4.900 kr
Nýjung á Íslandi!! 60 mínútna nudd með Jarðhnetuolíu ásamt heitum og köldum steinum sem fundnir eru í íslenskri náttúru. Nuddið veitir mjög góða slökun, vinnur ekki einungis á yfirborði húðarinnar og vöðvum, heldur einnig á innri kerfum líkamanns, þ.e.a.s blóðrásarkerfi, sogæðikerfi. Vinnur á bólgum og gömlum eymslum. Nuddið vinnur einnig á spiritual-nótum, þ.e.a.s hreinsar til í tilfinningalífinu með því að hreinsa orkubrautir og orkustöðvar.
Steinarnir gera okkur kleift að veita dýpra vöðvanudd, ná betur til vöðvafestinganna og losa betur um spennu án þess þó að meiri átök eigi sér stað. Unnið er með hita og kulda á víxl, og gerir sú skipting kraftaverk.
Kuldinn linar bólgur og sársauka, örvar innri kerfi líkamanns.
Meðferðin henntar vel sem slökunarnudd, vöðvanudd og sogæðanudd.
Frábært dekur - frábær meðferð – frábær árangur!!!
Við mælum með Steinanuddi í gjafabréfið !
Slakandi og mýkjandi nudd fyrir þungaðar konur sem þreytast oft í baki. Erum með séstaklega hannaðan bekk fyrir þungaðar konur sem gott er að liggja á.
Verð 4.900 kr (30 min)