Hérna mun koma skráning á póstlista


Opnunartími:
Virka daga 8:00-16:00

Handsnyrting


Fallegar hendur eru mikilvægur þáttur í heildstæðu útliti fólks, bæði karla og kvenna. Vel snyrtar hendur eru merki um, að viðkomandi lætur sér annt um útlit sitt í víðara samhengi. Við notum í handsnyrtingum okkar handsnyrtivörur frá Alesandro og Pronails.



Hvað er handsnyrting ?



  • Í handsnyrtingu eru neglur þjalaðar til og mótaðar.
  • Neglur og húðin í kring eru nærðar í volgu vatnsbaði með hungansnæringu
  • Naglabönd eru klippt til og snyrt.
  • Neglur eru djúphreinsaðar með kornakremi, bónaðar með bónþjöl og lakkaðar ef viðkskiptavinur óskar þess.
  • Höndin sjálf er djúphreinsuð og nærð með kornakremi í olíu, að því loknu gott handanudd með næringaríku nuddkremi.

Þú getur einnig fengið lúxus handsnyrtingu en þá er framkvæmd hefbundin handsnyrting. Við hana er svo bætt heitu parafin vaxi sem smýgur inn í dýpri húðlög, mýkir húðina og nærir hverja frumu. Parafin vaxið hefur einnig mjög góð áhrif á liði og liðamót. Unaðslegt dekur sem svíkur engan!!!



Meðferðir


Handsnyrting með lökkun (75 min) 6.200 kr
Handsnyrting án lökkunar(60 min) 5.800 kr
Lúxus handsnyrting (90 min) 7.300 kr
Parafín maski með nuddi (30 min) 4.200 kr
Lagfærðing á nöglum með lökkun (30 min) 3.500 kr


Við mælum sérstaklega með lúxus handsnyrtingu í gjafabréfið !