Hérna mun koma skráning á póstlista


Opnunartími:
Virka daga 8:00-16:00

Fótaaðgerðir


Hvað er fótaaðgerð ?


  • Fótaaðgerð er löggild heilbrigðisgrein þar sem að unnið er með algeng fótamein t.d. :
    • Þykkar eða niðurgrónar neglur
    • Líkþorn
    • Mikið sigg
    • Sprungur í húð
    • Vörtur
    • Sveppasýkingar
    • Rétting á táskekkju
  • Meðferðir eru m.a. spangarmeðferðir, sílikonmeðferðir, vörtumeðferðir og hlífðarmeðferðir, leiðbeiningar með val á skóm og ráðgjöf.
  • Fætur sykursjúkra eru í sérstökum áhættuhópi vegna þeirra fylgihvilla, sem fylgt geta sjúkdómnum.
  • Fótaaðgerðum er oft ruglað saman við fótsnyrtingu en fótsnyrting er meðhöndlun á heilbrigðum fótum
  • Aðeins lærðir fótaaðgerðafræðingar hafa heimild til slíkra aðgerða, enda um vandasama meðhöndlun að ræða.

Við mælum eindregið með að sem flestir láti fótaaðgerðafræðing meta fætur sína og fái úr því skorið, hvort aðgerða sé þörf og hljóta jafnframt ráðgjöf um hentugan fótabúnað og nauðsynlega fótaumhirðu.



Meðferðir

Grunnmeðferðir
Fótaaðgerð fyrsta koma 6.400 kr
Fótaaðgerð reglulegt viðhald 6.000 kr
 
Hliðarmeðferðir Ath:greiðast sérstaklega
Smáaðgerðir 15-45 min 2.100 - 3.300 - 4.000 kr
Vörtumeðferð 1.900-3.900 kr
Spangir ásetning 2.400 kr
Spangir uppfærsla 1.300 kr
Gelnögl í fótaaðgerð 800-1.200 kr
Gelnögl án annarra meðferða 2.500 kr
Cilicon 1.900-3.900 kr
Plástrar og hulsur 100-1.000 kr