Hérna mun koma skráning á póstlista
Opnunartími:
Virka daga 8:00-16:00
Við metum hvert og eitt tilfelli fyrir sig og veljum út frá því þá bestu meðferð sem völ er á. Við ráðleggjum einnig réttu hreinsikremin sem og þá næringu sem henta fyrir þig til heimanotkunnar. Verið velkomin á snyrtistofuna Líkama og sál og fáðu ráðleggingar varðandi þína húðumhirðu.
60 mínútna andlitsbað sem hentar fyrir alla aldurshópa og allar húðgerðir. Yfirborðshreinsun, góð djúphreinsun og húðslípun, 20 mínútna nudd með hreinu rakanuddkremi og haframaski í lok meðferðar. Frábær meðferð örvar frumustarfsemi húðarinnar, gefur slétt og fallegt yfirborð ásamt því að þétta og stinna húðina.
Meðferð, 5 skipti með viku millibili, kúr sem svíkur engan. Gott “kikk” fyrir húðina, örvar vel, svo húðfrumur endurnýja sig og starfa betur. Gott dekur, stinnari og fallegri húð á 5 vikum.
60 mínútna meðferð sem hentar fyrir allar húðgerðir og alla aldurshópa. Góð meðferð ef vinna þarf á sérstöku vandamáli, t.a.m óhreinni húð, húðþurrki , hrukkum, húðblettum. Meðferð þessa gerum við eina og sér en mælum þó eindregið með kúr 3-5 skipti. Einnig framkvæmum við þessa meðferð sem hluta af annarri Ella Bache meðferð það eykur árangur þeirra meðferðar.
120 mínútna lúxus-andlitsbað þar sem húðin fær eina af bestu þá næringu og uppbyggingu sem völ er á. Yfirborðshreinsun, djúphreinsun, kreistun ef þörf er á, djúpnæringar-ampúla (hrein næring) , 30 mínútna nudd á andlit, herðar og hendur með uppbyggjandi nuddkremi eða olíu allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Næringaríkur og uppbyggjandi maski í lok meðferðar. Meðferðin hentar fyrir alla, en er sérlega góð fyrir þroskaða húð 35+
Komdu í lúxus-andlitsbað, 3 skipti með 2ja vikna millibili og húðin geislar af heilbrigði. Frábært dekur og árangurinn lætur ekki á sér standa.
90 mínútna andlitsbað sem hentar vel fyrir feita og óhreina húð. Yfirborðshreinsun, góð djúphreinsun og létt húðslípun sem og kreistun. 15 mínútna nudd með nuddkremi sem við á hverju sinni og hreinsandi maski í lok meðferðar.
60 mínútna meðferð sem hentar vel fyrir unglinga 15 ára og yngri með mikið bólótta húð. Yfirborðshreinsun, góð djúphreinsun, húðslípun og kreistun. Í lok meðferðar hreinsandi, nærandi og rakagefandi maski. Meðferð þessi er tekin í kúrum og vænlegast til árangurs er að viðkomandi hafi vörur sem við mælum með til heimanotkunnar og vinni sjálfur heimavinnu með húð sína á milli meðferða.
90 mínútna himnesk sæla fyrir herðar og andlit. Yfirborðshreinsun, kröftug djúphreinsun, notalegar stokur með heitum súkkulaðimassa, nuddað er í 25 mínútur með heitum olíum og kristöllum. Súkkulaðimassinn er mjög andoxunnarríkur og vinnur því vel gegn skaðlegum áhrifum á húðina af völdum mengunar, reykinga, öldrunar svo fátt eitt sé nefnt. Húðfrumurnar starfa betur, endurnýja sig fyrr en ella og skila okkur þannig heilbrigðari og fallegri húð. Nuddað er með kristöllum sem vinna á orkustöðvunum, hreinsa þær sem og orkubrautirnar. Meðferðin skilar því góðum árangri innan sem utan. Okkar allra besta dekur sem völ er á og engin ætti að láta fram hjá sér fara!!!
90 mínútna andlitsbað með einstökum húðlækningavörum sem eru 100 % náttúrulegar. Góð yfirborðshreinsun og djúphreinsun, kreistun ef þarf, 20 mínútna nudd á andlit og herðar með mjög vítamínríku nuddkremi og nærandi lokamaska.
120 mínútna lúxus meðferð með úrvals vörum GERnétics. Hentar fyrir allar húðgerðir og allan aldur. Sérlega gott þó fyrir 35+. Mjög góð næring og uppbygging fyrir húðina. Yfirborðshreinsun, góð djúphreinsun, 30 mínútna andlits-og herðanudd, ásamt djúpnæringar-ampúlu. Einnig eru hendur viðskiptavinar nuddaðar á meðan maskinn vinnur á húðinni. Maskinn er sérstakur vitamin- og steinefna-maski sem upplífgar þreytta húð, nærir og þéttir húðina.
90 mínútna andlitsbað sem hentar fyrir allar húðgerðir og alla aldurshópa. Yfirborðshreinsun, góð djúphreinsun, og húðslípun. 20 mínútna nudd með nuddkremi ásamt blómadropum. Þessi meðferð er æfinlega tekin í 9 vikna kúr ásamt “heimavinnu” sem viðskiptavinur vinnur á milli meðferða. Árangurinn af þessari meðferð er hreint út sagt meiriháttar!!! Blómadroparnir örva endurnýjun húðfrumanna, hægir á öldrunnar einkennum, eykur ljóma húðarinnar og útgeislun.
90 mínútna andlitsbað þar sem húðin er yfirborðshreinsuð, djúphreinsuð og slípuð. Gufa og kreistun ef þörf er á. Gott 20 mínútna djúpslökunnar og vöðvanudd á andlit, háls og herðar. Maski valin eftir hvað hentar hverjum og einum. Vörurnar í þessari meðferð eru mýkjandi, nærandi og lyktaminni en aðrar vörur hjá okkur og hennta því einstaklega vel fyrir karlmenn. Athugið að andlitsböð henta körlum ekki síður en konum !!!
30 mínútna meðferð þar sem áherslan er á augnsvæðið. Andlit er yfirborðshreinsað, & djúphreinsað. Andlit er nuddað, þó mest á augnsvæðinu með uppbyggjandi og nærandi augnkremi sem valið er eftir því hverju viðskiptavinurinn leitar að. Frábær augnmaski í lokin sem þéttir húðina, sléttir og dregur úr vökvasöfnun. Einnig er lagður rakamaski yfir andlitið.
45 mínútna meðferð sem hentar fyrir alla aldurshópa og allar húðgerðir. Hentugt fyrir fólk á hraðferð. Stutt meðferð þar sem húðin er yfirborðshreinsuð, nudd og maski.